Miðvikudagur, 16. maí 2007
Bloggleiði
Ég er komin með leið á bloggi og ætla ekki að skrifa meira á þessa síðu að sinni. Ef til vill nenni ég að taka upp þráðinn í haust. Hafið það gott í sumar og takk fyrir mig.
Hilsen,
Simmi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (60)
Laugardagur, 12. maí 2007
Júró uppgjör
Búlgaria númer fimm. Hræðileg lag.
Bömmer að úkraína skyldi ekki vinna.
Írland og UK í síðustu tveimur sætunum. Breska lagið setti sennilegast met í hallærisgangi.
Slóvenía númer 15. Ég fílaði það í botn og spáði því inná topp 4. Skáphurðin er greinilega opin. Lettar voru líka of neðarlega.
14 af 16 efstu eru austur evrópuþjóðir. Hinar tvær eru Grikkland og Tyrkland.
Georgía númer 12. Ertu ekki að djóka? Jafnvel verra en Búlgarska lagið.
Skandinavía fær útreið í keppninni.
Finnar eru gott fólk.
Eiríkur Hauksson er frábær maður.
Rosalega verður gott að koma heim.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (41)
Fimmtudagur, 10. maí 2007
Reiði í Evróvisjón
Það er talsvert uppnám í gangi hér í Evróvisjónlandi eftir úrslitin í kvöld. Austurevrópuþjóðirnar röðuðu sér í vinningsætin. Vestasta landið sem komst áfram var Slóvenía, sem þó tilheyrir austurblokkinni. Það er mikið rætt um það núna að þessi úrslit verði til þess að reglum keppninnar verði breytt. Væntanlega verður þó hægt að ráða betur í spilin eftir að stigagjöfin verður gerð opinber eftir úrslitin á laugardaginn. Það liggur fyrir að keppninni verður breytt með einhverjum hætti eftir tvö ár, en það er meira vegna þess að þjóðirnar eru orðnar of margar til að komast fyrir í núverandi fyrirkomulag. Úrslitin í kvöld er klárlega vatn á myllu þeirra sem tala fyrir tveimur undanúrslitum. Þá er til dæmis rætt um það fyrirkomulag að bara fimm efstu þjóðir í hverri úrslitakeppni komist beint áfram í úrslitin árið eftir, í stað 10 einsog núna. Allar hinar, 36-40 þjóðir, þyrftu að keppa á tveimur undanúrslitakvöldum. Tíu kæmust upp úr hvorum undanúrslitariðli og þannig yrðu 25 þjóðir í úrslitum.
Sjáum hvað setur. Ég get alla vega fullyrt það, eftir að hafa rætt við fólk baksviðs, frá hinum ýmsu Evrópulöndum, að þessi úrslit fara gríðarlega öfugt ofan í marga. Margir evróvisjónspekingar eru illir vegna þeirra. Og þetta snýst ekki um Eirík eða ísland, heldur þá staðreynd að ekki eitt einasta lag frá vestur Evrópu komst áfram. En Búlgaría og Georgía runnu í gegn, svo dæmi sé tekið. Meira seinna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (64)
Miðvikudagur, 9. maí 2007
Eiki flottur á generalprufunni
Á þessari stundu sit ég í þularklefanum í Hartwall höllinni í Helsinki og er að horfa á eina af þremur generalprufum sem haldnar eru fyrir keppnina. Það er selt inná generalprufurnar og því er slatti af fólki í húsinu, þó ekki húsfyllir. Okkar lagi var vel tekið, í það minnsta var ekkert púað einsog í fyrra. Eiríkur var númer fimm í röðinni og skilaði sínu nánast óaðfinnanlega. Hann var pínku óstyrkur fannst mér í upphafi lagsins en það lagaðist fljótt. Algerlega óháð því hvort fólki finnst íslenska atriðið gott eða slæmt, Eiríkur töff eða ekki, þá eru allir sammála um að hann er hrikalega kraftmikill söngvari. Þetta lag hentar honum vel. Flytjendurnir hér eru reyndar ákaflega misjafnir. Sumir eru rammfalskir, til að mynda Daninn og Hvítrússinn. Lögin eru mjög fjölbreytt í ár, í undanúrslitunum má til að mynda heyra fimm rokklög, slatta af poppi, klassískan söng, blús og svo náttúrulega eitthvað af rusli einsog vera ber í Júró.
Önnur generalprufan verður í kvöld. Meira síðar....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
Þriðjudagur, 8. maí 2007
Dragdrottningin rúlar
Ég veit svosem ekki hvað það er en hugsunarhátturinn hjá mér breytist talsvert þegar ég fylgist með þessum Evróvisjónsirkus. Dæmi: Hingað til hefur mér verið hjartanlega sama um karlmenn sem klæða í sig í nælonsokkabuxur og setja upp hárkollu. Í dag hef hinsvegar raunverulega, vel ígrundaða og rökstudda skoðun á því að Úkraínska dragdrottingin sé frábær en sú Danska hreinræktað krapp. Með sama áframhaldi verð ég mættur í djassballet eftir nokkra daga. Maður minn lifandi.
Úkraínska lagið er frekar einfalt, en sprenghlægilegt á sviði. Flytjandin kallar sig Verka Serduchka og er algerlega að stela senunni hér í Finnlandi. Þetta er svona fífladrag og lagið límist við heilann, hvort sem maður vill það eða ekki. Lætin í kringum Verku minna mjög á sirkusinn sem var í kringum Sylvíu nótt í fyrra. Úkraína þarf ekki að taka þátt í undanúrslitunum en ég er klár á því að laginu vegnar vel í úrslitakeppninni. Þetta er lag sem margir kjósa vegna þess að þeir fíla það, en þetta er líka lag sem margir munu kjósa til að gefa skít í keppnina. Stórsniðugt.
Annars er algerlega ómögulegt að gera sér grein fyrir stöðunni hér. Ég er sammála Eiríki Haukssyni sem metur líkur okkar 50/50. Við eigum góðan séns á að komast áfram, en þó kæmi það ekkert á óvart þótt við sætum eftir. Það eru svona þrettán til fimmtán lög sem eiga séns á að vera meðal 10 efstu í undanúrslitunum, restin er léleg.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Mánudagur, 7. maí 2007
Enn af Júró
Seinna í dag verður móttaka hjá íslenska sendiherranum hér í Helsinki. Það er eitt af fjölmörgum kokteilboðum sem fylgja þessari keppni. Ég skrópa í þessi boð öllsömul af mikilli samviskusemi enda er ég að fylgast með æfingum hér langt frammá kvöld. Ætli maður kíki samt ekki í opnunarpartíið sem haldið verður í kvöld í Finnlandiahöllinni. Þar mæta allir keppendur, sendnefndir þjóðanna og trilljón blaðamenn. Ég held að nafnið, Finnlandíahöllinn, trekki vel að þessu sinni því mér sýnist á öllu að vel flestir blaðamenn hér séu ákaflega virkir alkar.
Guð, gefi mér æðruleysi
Til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt.
Kjark til breyta því sem ég get breytt
og vit til að greina þar á milli.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Sunnudagur, 6. maí 2007
Júróland - færsla tvö
Íslenski hópurinn er í rokna stuði. Fyrsta æfingin gekk vel en það eru enn nokkur atriði sem þarf að fínstilla. Önnur æfing verður haldin síðar í dag og í framhaldinu verður blaðamannafundur þar sem Eiríkur ætlar meðal annars að taka lagið. Þessi æfingarennsli ganga þannig fyrir sig að það er mætt í höllina í smink til Svavars Arnar hálftíma áður en æfingin sjálf byrjar. Síðan tekur við hálftími á sviðinu þar sem farið er yfir hreyfingar, myndvinnslu og þessháttar atriði. Að æfingu lokinni hefur hópurinn 20 mínútur til að skoða upptökur af herlegheitinum og gera athugasemdir og breytingatillögur við myndvinnsluna. Síðan tekur við hálftíma blaðamannafundur. Sama rennsli er hjá öllum þjóðunum sem taka þátt svo þetta er hálfgerð færibandavinna. Blaðamennirnir velja síðan þær þjóðir sem þeir vilja fylgjast með og mæta á æfingarnar og fundina.
Ég tók eftir því í gær að það var talsvert mikið horft á mig, bæði af öllum hommunum sem hér eru og einnig kvennfólkinu. Í raun má segja að ég hafi verið mældur út og auðvitað var ég þess fullviss að ég væri spreyjandi kynþokka og sexappíl yfir Helskinki og nágrannasveitafélög í áður óþekktu magni. Grimmur raunveruleikinn small í andlitið á mér þegar ég leit loks í spegil á hótelherberginu í gærkvöldi. Ég er með bólu á stærð við boxhanska í smettinu. Fyrst reyndi ég að fela hana með sminki en það breytti engu. Núna leita ég um alla Helsinki af skipamálningu í húðlit til að þekja kvikindið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Föstudagur, 4. maí 2007
Evróvisjón - dagur eitt.
Íslenski Evróvisjón hópurinn er komin til Helsinki eftir stutt og þægilegt ferðalag. Ballið byrjar hjá Eiríki Haukssyni á morgun. Þá er fyrsta æfing, blaðamannafundur og fleiri uppákomur. Við kíktum í höllina þar sem keppnin verður haldin og ég held að mér sé óhætt að fullyrða að þetta verður óvenju glæsilegt hjá Finnunum. Sviðið og öll önnur umgjörð er mjög flott. Við sjáum forsmekkinn af þessu í fréttum sjónvarps á morgun(laugardagskvöld) og að sjálfsögðu lúkkið á íslenska atriðinu. Tónlistaratriðin sem við sáum í dag renna stoðum undir þá fullyrðingu breskra sérfræðinga í Evróvisjón að keppnin í ár verður óvenju skrautleg. Listamenn ganga sífellt lengra í að fanga athygli þessar þrjár mínútur sem þeir hafa á sviðinu og það verða nokkur verulega frumleg, skrítin og hallærisleg atriði þetta árið.
Nenni ekki að blogga meira því ég er ferlega þreyttur. Ætla að reyna að henda inn færslum um Helsinkisirkusinn á hverjum degi. Túrúlú....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Fimmtudagur, 3. maí 2007
Óheiðarlegir fréttamenn eða ómálefnalegur varaformaður?
Margir stjórnmálamenn falla í þann fúla pytt að sverta blaða- og fréttamenn þegar það gengur ekki nógu vel að fella keilur í pólitíkinni. Í þessum fúla og daunilla polli svamla til að mynda saman þeir Davíð Oddsson og Össur Skarphéðinsson. Þeir hafa báðir átt andvökunætur vegna óheiðarlegra fréttamanna á “Baugsmiðlum” og “Bláskjá”. Margrét Sverrisdóttir tók sundsprett með þeim á dögunum þegar hún birti róg og níð um alla spyrla sjónvarpsstöðvanna á einu bretti í grein í Blaðinu.
Mér finnst varaformaður Íslandshreyfingarinnar hafa orðið sér til skammar með þessari grein. Hún vænir spyrlana um óheiðarleika með því að fullyrða að þeir séu allir sem einn "innvígðir og innmúraðir í stjórnarflokkanna". Engin fyrirvari – þeir eru allir undir sömu sök seldir. Ekki eitt einasta dæmi nefnt. Þessir spyrlar eru Sigmar Guðmundsson, Helgi Seljan, Sigmundur Ernir Rúnarsson, Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir, Brynja Þorgeirsdóttir, Svanhildur Hólm, Ingólfur Bjarni Sigfússon, Jóhanna Vilhjálmsdóttir og Egill Helgason.
Við fréttamenn höfum allir skoðanir á þjóðmálum. Hver einn og einasti. Við kjósum allir einhvern flokk í kosningunum eftir nokkra daga. Við afsölum okkur ekki réttinum til að hafa skoðanir þegar við hefjum störf á fjölmiðlum. Margrét er hinsvegar sannfærð um að Heimdallarþáttaka fyrir 20 árum flækist fyrir fólki í dag. Þetta er svakalega aumt.
Hver einasti fréttamaður þarf að gæta þess að láta ekki skoðanir sínar koma fram í vinnunni. Það gildir jafnt um þá sem hafa starfað í ungliðastarfi stjórnmálaflokka og þá blaðamenn sem tekið hafa þátt í háskólapólitík eða einhverju öðru félagsstarfi. Þetta gera blaðamenn á hverjum degi.
Ætli formaður Íslandshreyfingarinnar, Ómar Ragnarsson, sé sammála henni Margréti? Engin hefur flutt fleiri fréttir af virkjanamálum en Ómar. Engin er harðari virkjunarandstæðingur en Ómar. Og trúið mér, sú andstaða kviknaði ekki í gær. Tókst formanninum hennar Margrétar ekki bara ágætlega að halda skoðunum sínum til hlés í fréttunum?
Ég átti ágætt spjall við Margréti um þetta í dag. Hún sagðist í því spjalli treysta mér fyllilega sem fréttamanni og átti engin dæmi um að skoðanir mínar liti fréttafluttninginn. Þrátt fyrir það finnst mér að hún skuldi mér og öðrum spyrlum afsökunarbeiðni vegna ómaklegra ummæla á opinberum vettvangi. Svo væri líka gaman að heyra hvað Ómari finnst um málið.
Mæli með grein Egils Helgasonar um grein Margrétar.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (32)
Þriðjudagur, 1. maí 2007
Morð
Kötturinn Ronja kom heim í nótt með glaðning fyrir okkur heimilisfólkið. Hún skreið inn um gluggann með fugl í kjaftinum og dundaði sér við að murka úr honum tóruna hér á stofugólfinu. Mér finnst þetta nú hálfviðbjóðslegt, svona í ljósi þess að hér skríður Katla um öll gólf hin sprækasta. Fuglinn fékk virðulega útför við hæfi. Hans jarðnesku leifar hvíla nú í plastpoka útí ruslatunnu. Ég hef lítið vit á dýrafræði og greini jafnilla á milli fugla og bílategunda. En ég held að þetta hafi verið bókfinka, álmkraki eða haförn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.2.): 21
- Sl. sólarhring: 22
- Sl. viku: 100
- Frá upphafi: 852191
Annað
- Innlit í dag: 12
- Innlit sl. viku: 62
- Gestir í dag: 12
- IP-tölur í dag: 12
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
kristinalma
-
soley
-
730
-
nielsen
-
bjarnihardar
-
atlifannar
-
ulfarsson
-
halldorbaldursson
-
hallgri
-
snorris
-
gaflari
-
adalheidur
-
hlynurh
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
salvor
-
maggaelin
-
hlynur
-
sms
-
svenni
-
jonasantonsson
-
belle
-
bryndisisfold
-
hlinnet
-
poppoli
-
vefritid
-
olafurfa
-
dabbi
-
palinaerna
-
gudbjorn
-
dofri
-
sveinnp
-
hallurg
-
davidl
-
gattin
-
nonninn
-
dogg
-
joningi
-
alcandiary
-
hannibal
-
heida
-
hallgrimurxd
-
fanney
-
dagga
-
hansen
-
lara
-
bet
-
hrannarb
-
sasudurnesjum
-
feministi
-
herdis
-
truno
-
thorarinnh
-
ibbasig
-
vertinn
-
fletcher
-
panama
-
ea
-
doriborg
-
ingo
-
kleopatra
-
kolbrunb
-
cactusbuffsack
-
jakobsmagg
-
gudmbjo
-
gudfinnur
-
aas
-
feron
-
doolafs
-
stefanthor
-
ingabesta
-
maggabest
-
baldurjon
-
olafursv
-
vefarinnmikli
-
valdiher
-
gunnardofri
-
partners
-
bardurih
-
ingimarb
-
birnamjoll
-
ranur
-
baldvinj
-
elvarj
-
eyvar
-
killerjoe
-
tidarandinn
-
kosningar
-
id
-
disill
-
thordursteinngudmunds
-
darwin
-
dolli-dropi
-
bonham
-
gastone
-
heiddal
-
anno
-
hhbe
-
veggurinn
-
kolgrimur
-
godsamskipti
-
kiddip
-
sigfus
-
reykfjord
-
tharfagreinir
-
agnesasta
-
zerogirl
-
vestfirdir
-
sveddigeir
-
eyvi
-
heidathord
-
ottarfelix
-
klaralitla
-
bergurben
-
sigrunb
-
grettir
-
einarsson
-
rattati
-
magginn
-
elinora
-
jonthorolafsson
-
xsnv
-
egillhardar
-
mafia
-
bleikaeldingin
Tenglar
Gettu Betur
- Snorri (MH)
- Steinþór (Borgó)
- Þorkell (MS)
- Magnús Þorlákur (MR)
- Magni (MA)
- Jón Ingi (MK)
- Hafsteinn (Versló)
- Björn Reynir (MR)
- Davíð Þór
- Stebbi Páls
Frændgarður
Bransinn
- Þórir
- Svanhildur Hólm
- Arna Schram
- Friðrik Þór
- Þórarinn
- Hrafn
- Freyr Gígja
- Kristinn Hrafnsson
- Sölvi Tryggva
- BLOGGARINN EINI SANNI
- Helgi Seljan
- Halla Gunnarsdóttir
- Sigga Víðis
- Heimir Karls
- Sirrý
- Þórhildur
- Halldór Baldursson
- Jón Axel
- Ingvi Hrafn
- Atli Fannar
- Lára Ómars
- Hössi
- Kristján G.
- Hlynur fasteignaprangari
- Þórunn Hrefna
- Gunnar læknir
- Valdi
- Sigga Dögg (Nýja bloggið)
- Finnur Beck
- Brynja Björk
- Davíð Þór
- Denni Sævarr
- Pétur Gunn
- Þorsteinn J
- sme
- orðið á götunni
- Guðmundur Magnússon
- Davíð Logi
- Ómar
- Árni Matt
- Andrés Magg
- Howser
- G.Pétur
- Eiríkur Norðdahl
- Snorri Sturlu
- Héðinn
- Hallgrímur
- Sigurður Bogi
- Jónas
- Símon
- Valur Grettisson
- Bergljót
- Guðrún Helga
Ég les
- Þorri
- Kristján B Jónasson
- Bjarni Harðar
- Stefán Friðrik
- Áslaug Ósk
- Sveinn Waage
- maggabest
- Friðjón
- Ásta Lovísa
- donpedro
- Siggi Kári
- Gummi Steingríms
- Marshall
- Stefán Páls
- Bjarni Már
- Gunnlaugur 100 mílur
- Páll Ásgeir
- Gísli
- Bingi
- Ármann
- Sverrir
- Spretturinn
- James Blond
- Þorbjörn
- Grímur
- Helga vala
- Anna vélstýra
- Pétur popp
- Jóhann Jökull
- Gunna Polly
- Stefán Einar
- Máni
- Slúðrið