Bloggleiði

Ég er komin með leið á bloggi og ætla ekki að skrifa meira á þessa síðu að sinni.  Ef til vill nenni ég að taka upp þráðinn í haust.  Hafið það gott í sumar og takk fyrir mig.

Hilsen,

Simmi


« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigfús Þ. Sigmundsson

Takk fyrir skemmtilega pistla.  Hef haft mjög gaman að þeim....

Sigfús Þ. Sigmundsson, 16.5.2007 kl. 17:54

2 Smámynd: Anna Ólafsdóttir (anno)

 EN - Hafðu það gott og takk fyrir skemmtilegheitin!

Anna Ólafsdóttir (anno), 16.5.2007 kl. 18:03

3 Smámynd: Björg F

Skil þig vel.. nú er vorið komið og þá á maður að fara að hætta þessu rugli og telja býflugur þess í stað... sammála þér og held ég hoppi bráðum í sömu lest.. Gleðilegt sumar

Björg F, 16.5.2007 kl. 18:06

4 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

ekkert úthald, maður ;)

En hafðu það gott í sumar.

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 16.5.2007 kl. 19:32

5 Smámynd: Gaukur Úlfarsson

Nei nei nei.. Ekkert rugl Simmi! Þetta er eiginlega eina verulega fyndna bloggið í bænum..! Fussumsvei..!

Gaukur Úlfarsson, 16.5.2007 kl. 19:37

6 identicon

æææ

Linda (IP-tala skráð) 16.5.2007 kl. 19:40

7 Smámynd: Axel Jón Fjeldsted

Það var gaman að lesa bloggið þitt. Gleðilegt sumar.

Axel Jón Fjeldsted, 16.5.2007 kl. 21:29

8 Smámynd: Þór Ómar Jónsson

einmitt. greinilegt samsæri í gangi. sá að ómar valdimars er líka hætttttur að skrifa. annað hvort baugur eða ríkið að beyta brellum. eins og maður fattttttti þetta ekki.

Þór Ómar Jónsson, 16.5.2007 kl. 21:31

9 Smámynd: Jónína Benediktsdóttir

Takk!

Jónína Benediktsdóttir, 16.5.2007 kl. 21:41

10 Smámynd: Jónína Benediktsdóttir

Takið manninn út núna! Hann er farinn, týndur og......Simmi þú átt eftir að sakna okkar venjulega fólksins....Gangi þér vel fallegur.

Jónína Benediktsdóttir, 16.5.2007 kl. 21:44

11 Smámynd: Brynja Björk Garðarsdóttir

Just in time....

PS. Djöfull er ég að fíla það að Jónína kalli þig fallegan.  

Brynja Björk Garðarsdóttir, 16.5.2007 kl. 22:11

12 Smámynd: Ásgerður Fríða Vigfúsdóttir

Takk kærlega fyrir mig, þú lofar að koma aftur, er það ekki?

Gleðilegt sumar :-)

kveðja

Ásgerður

Ásgerður Fríða Vigfúsdóttir, 16.5.2007 kl. 22:12

13 identicon

Ansans .... ég þekki þig ekki neitt en les alltaf bloggið þitt. Fyrst fer ég á mbl og les fréttir, síðan á veðrið og síðan á þig....hvað á ég nú að gera, ég neita að byrja að lesa Ellyar blogg.....jæjja farðu og jafnaðu þig letibykkja og komdu svo aftur og skrifaðu...

Garún (IP-tala skráð) 16.5.2007 kl. 22:29

14 identicon

ohhh..ég sem var nýbyrjuð að skoða bloggið þitt og farin að hafa gaman af :(

kíki á þig í haust

Helga (IP-tala skráð) 16.5.2007 kl. 22:44

15 Smámynd: Tinna Gunnarsdóttir Gígja

Uss, þetta er náttúrulega bara júróþreytan að gera vart við sig...

Tinna Gunnarsdóttir Gígja, 16.5.2007 kl. 22:47

16 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Hva.....hinkrarðu ekki þangað til teljarinn dettur í milljón? Jæja...hvað um það. Eigðu gott sumar og takk fyrir líflegt blogg og ennþá líflegra Júróspjall.

Halldór Egill Guðnason, 16.5.2007 kl. 22:56

17 Smámynd: Árný Sesselja

Strump.... hvað á mar þá að lesa skemmtilegt..... þegar maður á að vera að gera eitthvað að viti við tölvuna?

Árný Sesselja, 16.5.2007 kl. 22:56

18 Smámynd: Steingrímur Helgason

Ég er búinn að verja það alveg í drep á móti undirróðurshjali í fullt af fáfróðu fólki að það sé alfarið þér að kenna að Eiki Rauði vann ekki júróið þetta árið.

Ég hefði frekar viljað þig á sviðinu með honum, en þessa hallærislegu fjóra gítarleikara, máske með bassann sem vantaði.

Hins vegar skil ég alveg að eitthvað verður að láta undan í opinberu lífi þegar pressann er svona íþyngjandi ósanngjörn.

Hafðu gott sumarí ven ....

S.

Steingrímur Helgason, 16.5.2007 kl. 23:04

19 identicon

............FÍNT, þá ferðu kannski eitthvað að vinna í vinnunni sæti!!!!!!!!!!!

fatafrík (IP-tala skráð) 16.5.2007 kl. 23:29

20 identicon

neiiiiii..... æj ég hlakka alltaf til að lesa...

FAN (IP-tala skráð) 17.5.2007 kl. 01:07

21 identicon

@Steingrímur
Það var nú bassaleikari á sviðinu og hann var foxheitur.

Haukur (IP-tala skráð) 17.5.2007 kl. 01:41

22 identicon

Þetta er engin tilviljun, Ómar og Sigmar voru báðir á lisa yfir lélegustu bloggin í Fréttablaðinu og 4 dögum seinna hætta þeir báðir að blogga.

Ég held að þeir taki það svolítið nærri sér að vera settir í hóp verstu bloggara landsins. 

Snorri (IP-tala skráð) 17.5.2007 kl. 02:10

23 Smámynd: Salvör  Kristjana Gissurardóttir

Takk fyrir skemmtileg blogg í vetur. Mér finnst áhugavert að það eru sérstaklega stjörnubloggarar sem eru á toppnum í lesningum sem hætta að blogga og koma áður með yfirlýsingar um það t.d. Hrafn Jökuls og Guðmundur Magnússon. 

Það getur enginn haldið athygli múgsins með skemmtilegheitum út í það óendanlega og það er þreytandi að hafa það á tilfinningunni að maður sé að skrifa fyrir lesendur og til að viðhalda vinsældum. 

Mér finnst best að líta á blogg sem tæki til ígrundunar og til að orða hugsun mína og hafa helst engan lesanda í huga nema sjálfa mig - sjálfa mig í núinu og líka sjálfa mig eftir einhver ár þegar ég lít yfir bloggið og rifja upp og undrast hvernig ég hugsaði þá. Mér finnst núna gaman að skoða eldri blogg t.d. frá 2001 og sjá hvernig áhugamálin og áherslur og hugsun breytist.

Þetta er svona eins og með listamenn, eitt tímabil  málar kannski listamaður allt með bláum litum og svo kannski sér maður persónur smán saman verða meira abstrakt (t.d. eins og málverk listakonunnar Sossu). Ef maður skrifar eins blogg í dag og fyrir fimm árum þá er eitthvað að persónulegum þroska. Þá hefur maður staðnað. Ég hlakka til að lesa bloggið þitt þegar þú byrjar aftur. 

Salvör Kristjana Gissurardóttir, 17.5.2007 kl. 08:04

24 Smámynd: Brjánsi

sá þig fyrir mér með lappann í nauthálsvík í sumar súpandi mojito, glottandi við tönn að skrifa um málefni líðandi stundar...

Brjánsi, 17.5.2007 kl. 09:28

25 Smámynd: B Ewing

Besta mál. Ekki það að bloggið sé eitthvað vont, heldur er gott fyrir alla að taka sér frí frá bloggi. Vonandi snýrðu aftur ferskari en nokkru sinni. Nú ef ekki, þá neyðist fólk til að lesa ó-bloggið / hrafnasparkið hjá Helga Seljan eða Ómari R. Valdimarssyni. Guð forði okkur öllum frá því :p

B Ewing, 17.5.2007 kl. 13:10

26 Smámynd: Báran

Takk fyrir góða skemmtun síðustu vikur.  Hafðu það gott í sumar

Báran, 17.5.2007 kl. 15:17

27 identicon

Vá gott fólk, eigum við að róa okkur í gullhömrunum? Það er oft gaman að þessu bloggi og allt það en eru þetta ekki fullmiklar rassasleikingar? Allir að reyna að láta fræga fréttamanninn muna eftir sínu kommenti.

Andrés (IP-tala skráð) 17.5.2007 kl. 16:37

28 identicon

Sóun á blogghæfileikum, hef haft gaman af að lesa þetta blogg hjá þér kall.

Máni (IP-tala skráð) 17.5.2007 kl. 17:11

29 Smámynd: Bryndís Guðmundsdóttir  (Binna)

Takk fyrir skemtilega pistla. Hafðu það gott í sumar.

Bryndís Guðmundsdóttir (Binna), 17.5.2007 kl. 18:34

30 identicon

Andrés: Hver ert þú og hvern fjandan veist þú um afhverju fólk er að kommenta á þetta blog? Þetta gætu þessvegna verið elskhugar og fjölskyldumeðlimir allt saman, vertu ekki alveg svona bitur.

 Takka annars fyrir góða skemmtun, Zygmar.

Gunnar (IP-tala skráð) 17.5.2007 kl. 22:48

31 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Við hin erum þegar farin að mjakast upp vinsældalistann á blogginu.  Sé að ég er komin inn á vinsældalistann blogg 150! 

Vilborg Traustadóttir, 17.5.2007 kl. 23:32

32 Smámynd: Eysteinn Skarphéðinsson

Leið og ég byrja þá hætta allir?  Menn eitthvað smeykir, hvar ætli ég sé á vinsældarlistanum???????

Eysteinn Skarphéðinsson, 18.5.2007 kl. 09:20

33 identicon

Við verðum þá bara að lesa blogg dóttur þinnar. Hún er jafn skemmtileg.

Hrafnhildur (IP-tala skráð) 18.5.2007 kl. 11:28

34 Smámynd: Þór Ómar Jónsson

hættiði þessu bulli. þetta er bara samsæri. simmi var þvingaður til að hætta. austanblokks mafían...

Þór Ómar Jónsson, 18.5.2007 kl. 14:00

35 identicon

...hva.....voðalega var þetta eitthvað stubbóttur endir.........slut, put finale.....!

Hafnfirðingurinn (IP-tala skráð) 18.5.2007 kl. 15:21

36 Smámynd: Ruth Ásdísardóttir

Takk kærlega fyrir mig. Mér finnst bloggið þitt alveg nauðsynlegt í dagsins önn. :) Eitt af fáum bloggum sem ég lít alltaf á í byrjun dags þegar ég kem í vinnuna.

Hafðu það gott í sumar! :)

Ruth Ásdísardóttir, 18.5.2007 kl. 21:31

37 Smámynd: Kristín Alma Sigmarsdóttir

Þú mátt vera gestabloggari á mínu bloggi ef þú vilt.

Take care old man, take care. 

Kristín Alma Sigmarsdóttir, 19.5.2007 kl. 23:41

38 identicon

Er einn af fjölmörgum áðdáendum og dyggu lesendum sem eiga eftir að sakna skrifa þinna. Þú hefur oft gert daginn minn.

Það er nauðsynlegt og gott að hvíla sig til að koma sterkur inn seinna. Hlakka til.

Olga Björt (IP-tala skráð) 22.5.2007 kl. 16:22

39 identicon

Þarna varstu óheppinn að fá þessa blogg leiði á þessum tíma og missa af þegar Byr byrjar að styrkja sérvalda bloggara því ég tel líklegt að þarna hafirru misst af smá auka aurum um hver mánaðarmót! ;)

Yngvi Freyr Einarsson (IP-tala skráð) 25.5.2007 kl. 15:29

40 identicon

Æi elskulegur. Þú hefur bara júróað yfir þig og það hefur blandast við bloggið. Nú eru um tvær vikur liðnar frá því þú skrifaðir síðast. Ég er vissum að þig hefur eitthvað langað til að segja á þessum tveimur vikum. Er þaggi? Nú svo er það hinn möguleikinn... að stofna nafnlaust blogg og láta allt vaða... mjög inn þessa dagana. 

maggabest (IP-tala skráð) 26.5.2007 kl. 15:15

41 identicon

Æi, láttu ekki svona Sigmar. Hættu við að hætta.

Aðdáandi 

Dísa (IP-tala skráð) 30.5.2007 kl. 13:56

42 identicon

æ-i kommon - þú hlýtur að vera búinn að jafna þig á Júróvisjón og ert tilbúinn að fara að blogga aftur... Fylgist leynt og ljóst með...

kv. Binnitz

Binnitz (IP-tala skráð) 31.5.2007 kl. 23:12

43 identicon

SIMMMMIIIII HALLLÓ! BLOGGÍBLOGGÍ

Gerður (IP-tala skráð) 1.6.2007 kl. 12:49

44 Smámynd: perla voff voff

gleðilegt sumar :)

perla voff voff, 1.6.2007 kl. 17:21

45 Smámynd: Móðir, kona, sporðdreki:)

Gaman að lesa bloggin þín og vonandi byrjarðu aftur að blogga:) Koma svo.....

Móðir, kona, sporðdreki:), 5.8.2007 kl. 09:40

46 Smámynd: Gísli Ásgeirsson

Mér finnst lygilegt hve margir heimsækja síðuna, 4 mánuðum eftir lokun. Hve oft ætli sumir hafi lesið síðustu færsluna og grátið af vonbrigðum í koddann sinn? Hvar hafa dagar lífs þessa fólks lit sínum glatað?

Gísli Ásgeirsson, 11.9.2007 kl. 19:02

47 identicon

Jæja, komið haust!  Eru menn ekki komnir í gírinn aftur?  ;)

Karl (IP-tala skráð) 12.9.2007 kl. 00:36

48 identicon

Halló!

Góður þáttur, Útsvar!

Kv. B. 

Birna (IP-tala skráð) 14.9.2007 kl. 20:38

49 identicon

Komið haust - tími til að byrja aftur!

Helga (IP-tala skráð) 28.9.2007 kl. 16:14

50 Smámynd: veffari

Jæja ég er búinn að kaupa jólagjöf handa Sigmar.  Honum finnst bleikt flott, er það ekki?

veffari, 26.10.2007 kl. 00:31

51 Smámynd: gudni.is

Komið er haust. Blogga, blogga, blogga.....

gudni.is, 7.11.2007 kl. 00:30

52 identicon

Jæja... nú hækkar sól á lofti og er ekki kominn tími til að hefjast handa aftur... Koma svo !

Búja að norðan !

Siggi (IP-tala skráð) 5.2.2008 kl. 23:22

53 identicon

Frábært hjá þér kastljósið í gær, svona eiga fréttamenn að vera.

Alltof sjaldgæft að sjá svona á Íslandi. 

Gunnar (IP-tala skráð) 8.2.2008 kl. 12:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Zygmarr

sigmarg@ruv.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 852670

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband