Bloggfærslur mánaðarins, mars 2007
Laugardagur, 31. mars 2007
Gettu betur
MR hampaði hljóðnemanum í gær eftir frábæra keppni við MK. Sigur skólans er verðskuldaður og ég held að engin móðgist þegar ég segi að MR sé með besta Gettu betur liðið í vetur. En rosalega var þetta tæpt hjá þeim Hilmari, Magnúsi og Birni í úrslitunum. MK hefði hæglega getað hirt þetta, fjórum stigum yfir þegar sex stig voru eftir í pottinum. En þeir misstu nánast unna keppni í bráðabana vegna þess að það vantaði nafnið Egill Skallagrímsson í síðasta svarið þeirra. MR negldu þetta svo í bráðabananum. MK ingar eru spútnikar vetrarins. Þeir voru ekkert sérstakir í útvarpinu og fáir áttu von á því að þeir næðu svona langt. Þeir hafa hinsvegar í úrslitum og undanúrslitum séð sjónvarpsáhorfendum fyrir slíkri spennu að annað eins hefur ekki sést í keppninni í mörg ár. MK ingar eru hoknir af reynslu eftir veturinn. Þeir þekkja það bæði að sigra í bráðabana eftir að nánast stolið sigrinum af MH – og svo töpuðu þeir með nákvæmlega sama hætti gegn MR í gær.
Bæði þessi lið verða öflug á næsta ári. MK verða mögulega með óbreytt lið. MR ingar missa Hilmar, sem er mikil blóðtaka, en vafalítið bíður öflugt fólk í röðum eftir því að komast í liðið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (25)
Fimmtudagur, 29. mars 2007
Kálfakögglar á alþingi. (Krónikan 22 mars)
Blessunarlega náðu þingmennirnir okkar lendingu í risastóra "hvenæreigumviðeiginlegaaðfaraífrí málinu". Þjóðin hefði fengið útbrot og heiftarleg ofnæmisviðbrögð ef fleiri fréttir hefðu verið fluttar af þrasi þingheims um þinglok. Ég vil ekki vera leiðinlegur, en ég skil ekki þennan sífellda fréttafluttning af því hvort þingmenn fari deginum fyrr eða síðar í frí. Fólkið í landinu missir ekki svefn yfir þessu pexi. Það þarf nefnilega enga doktorsgráðu í kjarneðlisfræði til að átta sig á að alþingismönnunum okkar dytti það aldrei til hugar að stytta fríið sitt að neinu ráði. Reyndar er bannað að kalla fríið frí, því þingmenn hafa uppi stór orð um að fríið sem ekki má kalla frí, sé í raun ekkert frí, heldur púl og þrældómur. Venjulegt fólk sem fær bara fimm vikur í sumarfrí og nýtur ekki sérstakra ofurkjara í lífeyrisréttindum virðist eiga erfitt með að skilja þetta. En það er svosem ekkert nýtt að pöpullinn sé tregur.
Það verklag rétt fyrir þinglok, að rumpa af tugum þingmála í ofboðslegum hlandspreng, er ekki til fyrirmyndar. Svona vinnubrögð þóttu töff í sveitinni þegar henda þurfti heyböggum í hlöðu áður en það fór að rigna. Einnig vorum við strákarnir í Fóðurblöndunni svalir í gamla daga þegar við stöfluðum fóðurbæti í gám í tvo sólahringa án hvíldar til að ná uppí pöntun. En alþingi er engin hlaða. Ekki eru þar heldur framleiddir kálfakögglar. Samt vinna þingmenn einsog verkamenn í akkorði í Fóðurblöndunni. Lagabálkar hendast í gegnum þingið einsog magnesíum fóðurblokkir á bretti. Þótt vissulega eigi sveitamennska og afdalaháttur sér djúpar rætur við Austurvöll, þá má vel gera kröfur til þingmanna um annað verklag.
Efast til dæmis einhver um það, eftir tíðindin í olíusamráðsmálinu, að þingmönnum veitti af því að vanda sig aðeins betur við lagasmíðarnar. Olíuforstjórarnir þrír, sem hafa opinberlega játað að hafa svindlað á fólki, sluppu meðal annars vegna stórvægilegra galla á samkeppnislögum. Hverjir bera ábyrgð á þeirri hrákasmíð sem sú lagasettning reyndist, ef ekki þingmennirnir sem eru alltaf að flýta sér svo mikið í frí?
En auðvitað þurfa þingmenn að komast útúr alþingishúsinu, til að ná tengslum við kjósendur. Kannanir sýna nefnilega að vel innan við þriðjungur þjóðarinnar ber traust til þess starfs sem unnið er í sal alþingis. Og traustið þverr jafnhratt og fylgi Framsóknarflokksins og hefur reyndar ekki verið minna í tæp 14 ár. Samt rígheldur þessi stofnun í úreltar reglur um klæðaburð karlmanna og harðbannar mönnum að tala nema nota úr sér gengin ávarpsorð, allt í því skyni að auka á virðuleika og traust samkomunnar. Fúkyrðaflaumurinn sem stundum gengur útúr mönnum í þingsal verður hinsvegar ekkert virðulegri þótt notuð séu orðin háttvirtur og hæstvirtur.
Þingmenn munu næstu vikur reyna að tala til kjósenda. Ætli færi ekki betur á því að þeir notuðu fríið sitt og kosningabaráttuna til að hlusta.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
Miðvikudagur, 28. mars 2007
Dagsatt...
Ég hef það fyrir satt, og ég treysti heimildamanni mínum algerlega, að maður sem ég kynntist lítillega í framhaldsskóla hafi sagt blaðmanni sem fermdist með nágranna mínum - að svilkona frænda míns viti fyrir víst að næturvörður í KB banka hafi heyrt á tal tveggja manna á Ólíver sem töluðu opinskátt um að Ingibjörg Sólrún hafi hringt í Geir Haarde í síðustu viku. Og trúið mér, það var sko ekki verið að skiptast á kökuuppskriftum í því spjalli! Jæja, nú nenni ég ekki blogga meira – er farinn á barinn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Þriðjudagur, 27. mars 2007
Spaugstofan handtekin
Þeim brá nokkuð í brún Spaugstofumönnum þar sem þeir sátu í smá gleðskap heima hjá Birni Emilssyni upptökustjóra í gærkvöldi. Tveir einkennisklæddir lögreglumenn birtust skyndilega ábúðarfullir á svip og vildu ná tali af fimmmenningunum vegna þess eineltis sem þjóðsöngurinn varð fyrir í síðasta Spaugstofuþætti. Nokkuð fátt kom á mannskapinn, enda hefur lögregla áður haft afskipti af þáttargerð grínaranna og því stutt í stimpilinn “góðkunningjar lögreglunnar”. Lögreglan sagðist vera komin á vettvang til að handtaka Spaugstofumenn en nokkuð fljótt áttuðu þeir sig á því að þetta var leikþáttur, settur á svið af vinnustaðagrínaranum Birni Emilssyni.
Spaugstofunni hafa borist fáar kvartanir vegna meðferðar þeirra á þjóðsöngnum, eftir því sem þeir segja sjálfir.
Að lokum vil ég benda á þessa færslu hér á Kötlugosinu. Tek heilshugar undir að StígamótaRúna er afleitur ljósmyndari. Henni tekst að láta eðlilegt og heilbrigt fólk líta út einsog langlegusjúklinga með því einu að snerta myndavél. Katla krútt verður meira að segja einsog hljómborðsleikarinn í Lordi þegar StígamótaRúna ýtir á takkann.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (26)
Sunnudagur, 25. mars 2007
Heilagar kýr
Núna er aðalumræðuefnið á kaffistofunum hvort Spaugstofan hafi brotið lög með því að djóka aðeins með þjóðsönginn. Útfrá laganna hljóðan virðist augljóst að grínararnir eru lögbrjótar. Hvort þeir verða sóttir til saka kemur í ljós. En er ekki eitthvað bogið við lög sem banna smá grín með þjóðsönginn? Ég er með smá ráðleggingu fyrir þá sem eru að fara á límingunum yfir þessu. Takið út orðið “þjóðsöngur” og setjið inn orðin “Múhameð spámaður” og hugsið í leiðinni um skopmyndir og Jótlandspóstinn. Viljum við svona húmorsleysi og heilagar kýr?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (40)
Fimmtudagur, 22. mars 2007
Samsettar fjölskyldur (Krónikupistill 15 mars)
Ég er sérfræðingur í samsettum fjölskyldum. Barnaskarinn á heimilinu mínu samanstendur af tveimur blóðbörnum og tveimur stjúpbörnum. Blóðbörnin eru ekki sammæðra. Heldur ekki stjúpbörnin. Reyndar er annað stjúpbarnið og annað blóðbarnið sammæðra. Til allrar hamingju er ég ekki kaþólikki því þá væri ég þyljandi maríubænir allan liðlangan daginn. Stórsyndugur.
En einsog mér þykir nú óendanlega vænt um öll börnin mín, þá er ekki laust við að þetta geti stundum verið flókið. Eðli málsins samkvæmt er flækjustigið sérstaklega hátt í jólamánuðinum þegar fjarskyldir ættingjar hópast saman af skyldurækni. Hver fer með hverjum í hvaða jólaboð? Þetta er verulega flókið álitaefni í minni fjölskyldu þar sem allt úir og grúir af ömmum og öfum.
Núna í marsmánuði eiga þrjár dætur mínar afmæli. Fyrir vikið stend ég frammi fyrir ákaflega nútímalegu vandamáli sem allar samsettar fjölskyldur þekkja.
Ef ég tæki uppá því að bjóða öllum aðstandendum barnanna minna í einu og sömu afmælisveisluna yrði samkoman skrautleg. Gestalistinn fyllti heila stílabók og partíið rúmaðist hvergi nema í kerskála álversins í Straumsvík. Eftir stækkun! Samskiptin yrðu álíka persónuleg og á loftslagsþingi Sameinuðu þjóðanna. Hvað gætu fyrstu tengdaforldrar mínir rætt við þá nýjustu, svona yfir mæjónesinu? Það eina sem þetta fólk á sameiginlegt eru veðurfarið og það er fátt dapurlegra í partíum en umræða um lægðir suður af landinu.
Hvað á tildæmis fósturdóttir mín að kalla sambýliskonu pabba míns, sem þó er ekki mamma mín, þegar þær hittast? Stjúpfósturömmu? Og hvað á strákurinn minn, sem fyrrverandi kona mín á með öðrum manni en mér, að kalla fyrrverandi stjúpson Þóru, sem er sambýliskona mín í dag? Þeir eru á svipuðum aldri og í sama skóla. Ég sé fyrir mér senaríóið þegar þeir kynnast á leikvellinum í Melaskóla. “Er Þóra núna mamma þín? Hún var einu sinni stjúpmamma mín.”
Eins ótrúlega og það kann að hljóma þá hafa börnin aðlagast þessum fjölskylduflækjum býsna vel. Elsta dóttir mín talar til dæmis alltaf um Þóru sem móður sína í föðurætt. Fjögurra ára dóttir mín er hæstánægð með að eiga tvo pabba og montar sig ákaft af þeim báðum. Ef eitthvað er þá er hún afbrýðisöm útí bróður sinn sem á þrjá!
Er þetta vont fyrir börnin? Eru þau komplexuð og skortir festuna úr gömlu kjarnafjölskyldunni? Þetta getur vissulega valdið ruglingi og verið erfitt. En á meðan flækjurnar snúast að mestu um boðskort í afmælisveislur og þeyting á milli jólaboða er varla hægt að tala um stórvægileg vandamál, eða hvað?
Eftir að hafa búið við svona fjölskyldumynstur í áraraðir áttar maður sig á að orðið “systkini” er skilgreiningaratriði. Systkini geta átt sama pabba en búið hvort í sínu landi. Systkini geta líka búið undir sama þaki en tengst aðeins í sjötta ættlið. Blóðbönd er ekki skilyrði fyrir væntumþykju.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (30)
Þriðjudagur, 20. mars 2007
Fréttir af Geir
Ég sé að bloggarar eru farnir að skrifa um mál Geirs Þórissonar á ný, samanber þessa færslu hér og hér. Greinilegt að margir finna hjá sér þörf til að skrifa honum bréf eða aðstoða hann á annan hátt því mér skilst að þó nokkrir einstaklingar hafi lagt lítilræði inná reikning sem fjölskylda hans stofnaði. Ég fékk bréf frá Geir á dögunum þar sem fram kom að einn samfangi hans var myrtur í fangelsinu skömmu eftir að ég tók við hann viðtalið. Það er hinsvegar ekki flokkað sem morð í fangelsinu því maðurinn lést af sárum sínum á spítala skömmu eftir árásina. Geir fullyrðir að þetta sé dæmi um hve opinberar tölur um dauðsföll innan múranna séu villandi. Að öðru leiti gengur lífið sinn vanagang hjá honum. Frómt frá sagt er hann ekkert sérstaklega bjartsýnn á að fá að afplána þau níu ár sem hann á eftir á Litla Hrauni.
Ég hef tvívegis áður bloggað um Geir og þá skrifuðu nærri hundrað manns athugasemdir við hvora færslu. Mér fannst forvitnilegt að lesa hversu skiptar skoðanir voru um mál hans. Enn merkilegra fannst mér að ég þurfti tvisvar að eyða út athugasemdum vegna þess hver orðljótir menn voru. Nafnlaust að sjálfsögðu. Það er í fyrsta sinn sem ég hef þurft að eyða út athugasemdum af blogginu mínu vegna þess að vegið er að æru fólks. Sýnið gætni í orðavali.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (34)
Mánudagur, 19. mars 2007
Zero
Það getur oft verið erfitt að fóta sig í veröld hins pólítíska rétttrúnaðar. Ég ætla samt að gera eftirfarandi játningu. Mér þykir nýja Kókið, Zero, barasta helvíti fínt á bragðið. Prófaði nokkrar flöskur um helgina og geri fastlega ráð fyrir að Zeroið leysi kók Light af hólmi í framtíðinni. Vonandi verður það ekki til þess að ég verði úthrópaður sem karlremba með áhuga á mansali og barnavændi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (39)
Sunnudagur, 18. mars 2007
Olsen bræður hjá Kaupþingi
Olsen bræðurnir Dönsku voru aðalnúmerið á veglegri Evróvisjón árshátíð Kaupþings í gærkvöldi. Allt varð brjálað í 1800 manna veislunni þegar Danirnir stigu á stokk en þeir sigruðu Evróvisjón eftirminnilega árið 2000. Gert var ráð fyrir að Olsen bræður flyttu þrjú lög á árshátíðinni en þeir bættu nokkrum við vegna góðra undirtekta Kaupþingsfólks. Evróvisjónþemað mæltist vel fyrir hjá fólki og það var vel pakkað á dansgólfinu í öllum atriðunum. Icy tríóið kom saman og söng gleðibankann, Stebbi og Eyfi tóku Nínu (tvírætt orðalag), Selma söng bæði evróvisjónlögin sín, Eiríkur söng nýja lagið og Páll Óskar söng og þeytti skífum.
Ekki tókst að fá hina Finnsku Lordi til að troða upp á árhátíðinni. Einkennilegar kröfur Lordi urðu til þess að horfið var frá því að fá gúmmíhanskabandið hingað til lands en kröfurnar fylltu 12 blaðsíður samkvæmt upplýsingum Zygmarrs. Lordi heimtuðu meðal annars MogM kúlur í ákveðnum lit sem er náttúrulega elsti og þreyttasti rokk og ról brandari mannkynssögunnar. Önnur sérkennileg “smáatriði” hefðu einnig kallað á óheyrilegt umstang sem menn nenntu einfaldlega ekki að standa í. Þá var allur kostnaður við sprengju og ljósashow og uppihald hljómsveitarinnar útúr öllu korti að mati þeirra sem þekkja til. Miðað við stemmninguna sem Olsen bræður bjuggu til með einföldu gítarspili og vinalegri framkomu, er ljóst að Kaupþingsfólki þótti ekki verra að fá miðaldra Dani en forljóta Finna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
Föstudagur, 16. mars 2007
Formúlubréfið
Ég hef nú ekki getað fylgst mikið með þessu Baugsmáli vegna tungumálaörðugleika en samt blasir við að þetta mál er tómt bull. Það er augljóst á öllu – þótt ég hafi nú ekki mikið fylgst með vegna tungumálaörðugleika – að Jón Ásgeir er saklaus. Hann er nefnilega svo flinkur í bissness. Svo vil ég taka fram – þótt ég viti nú ekki mikið um málið vegna tungumálaörðugleika – að þegar viðskipti eru gerð á hraða Jóns Ásgeirs þá getur bókhaldið auðveldlega fokkast upp. En hey, hvað veit ég, hafandi lítið fylgst með Baugsmálinu vegna tungumálaörðugleika?
Sjálfur fylgist ég aldrei með formúlunni. En það er ekki vegna tungumálaörðugleika.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.3.): 0
- Sl. sólarhring: 11
- Sl. viku: 62
- Frá upphafi: 852681
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 40
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
kristinalma
-
soley
-
730
-
nielsen
-
bjarnihardar
-
atlifannar
-
ulfarsson
-
halldorbaldursson
-
hallgri
-
snorris
-
gaflari
-
adalheidur
-
hlynurh
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
salvor
-
maggaelin
-
hlynur
-
sms
-
svenni
-
jonasantonsson
-
belle
-
bryndisisfold
-
hlinnet
-
poppoli
-
vefritid
-
olafurfa
-
dabbi
-
palinaerna
-
gudbjorn
-
dofri
-
sveinnp
-
hallurg
-
davidl
-
gattin
-
nonninn
-
dogg
-
joningi
-
alcandiary
-
hannibal
-
heida
-
hallgrimurxd
-
fanney
-
dagga
-
hansen
-
lara
-
bet
-
hrannarb
-
sasudurnesjum
-
feministi
-
herdis
-
truno
-
thorarinnh
-
ibbasig
-
vertinn
-
fletcher
-
panama
-
ea
-
doriborg
-
ingo
-
kleopatra
-
kolbrunb
-
cactusbuffsack
-
jakobsmagg
-
gudmbjo
-
gudfinnur
-
aas
-
feron
-
doolafs
-
stefanthor
-
ingabesta
-
maggabest
-
baldurjon
-
olafursv
-
vefarinnmikli
-
valdiher
-
gunnardofri
-
partners
-
bardurih
-
ingimarb
-
birnamjoll
-
ranur
-
baldvinj
-
elvarj
-
eyvar
-
killerjoe
-
tidarandinn
-
kosningar
-
id
-
disill
-
thordursteinngudmunds
-
darwin
-
dolli-dropi
-
bonham
-
gastone
-
heiddal
-
anno
-
hhbe
-
veggurinn
-
kolgrimur
-
godsamskipti
-
kiddip
-
sigfus
-
reykfjord
-
tharfagreinir
-
agnesasta
-
zerogirl
-
vestfirdir
-
sveddigeir
-
eyvi
-
heidathord
-
ottarfelix
-
klaralitla
-
bergurben
-
sigrunb
-
grettir
-
einarsson
-
rattati
-
magginn
-
elinora
-
jonthorolafsson
-
xsnv
-
mafia
-
bleikaeldingin
Tenglar
Gettu Betur
- Snorri (MH)
- Steinþór (Borgó)
- Þorkell (MS)
- Magnús Þorlákur (MR)
- Magni (MA)
- Jón Ingi (MK)
- Hafsteinn (Versló)
- Björn Reynir (MR)
- Davíð Þór
- Stebbi Páls
Frændgarður
Bransinn
- Þórir
- Svanhildur Hólm
- Arna Schram
- Friðrik Þór
- Þórarinn
- Hrafn
- Freyr Gígja
- Kristinn Hrafnsson
- Sölvi Tryggva
- BLOGGARINN EINI SANNI
- Helgi Seljan
- Halla Gunnarsdóttir
- Sigga Víðis
- Heimir Karls
- Sirrý
- Þórhildur
- Halldór Baldursson
- Jón Axel
- Ingvi Hrafn
- Atli Fannar
- Lára Ómars
- Hössi
- Kristján G.
- Hlynur fasteignaprangari
- Þórunn Hrefna
- Gunnar læknir
- Valdi
- Sigga Dögg (Nýja bloggið)
- Finnur Beck
- Brynja Björk
- Davíð Þór
- Denni Sævarr
- Pétur Gunn
- Þorsteinn J
- sme
- orðið á götunni
- Guðmundur Magnússon
- Davíð Logi
- Ómar
- Árni Matt
- Andrés Magg
- Howser
- G.Pétur
- Eiríkur Norðdahl
- Snorri Sturlu
- Héðinn
- Hallgrímur
- Sigurður Bogi
- Jónas
- Símon
- Valur Grettisson
- Bergljót
- Guðrún Helga
Ég les
- Þorri
- Kristján B Jónasson
- Bjarni Harðar
- Stefán Friðrik
- Áslaug Ósk
- Sveinn Waage
- maggabest
- Friðjón
- Ásta Lovísa
- donpedro
- Siggi Kári
- Gummi Steingríms
- Marshall
- Stefán Páls
- Bjarni Már
- Gunnlaugur 100 mílur
- Páll Ásgeir
- Gísli
- Bingi
- Ármann
- Sverrir
- Spretturinn
- James Blond
- Þorbjörn
- Grímur
- Helga vala
- Anna vélstýra
- Pétur popp
- Jóhann Jökull
- Gunna Polly
- Stefán Einar
- Máni
- Slúðrið